Tuesday, October 7, 2008

The Amazing Truth About Queen Raquela

Sæl öll.



Ef þið eins og ég tókuð ekki eftir tölvupóst sem okkur barst um frábæra uppákoma í skólanum á morgunn, miðvikudaginn 8.okt, kemur hér aðeins stytt útgáfa af póstinum:



Málþing og forsýning á vegum Stúdentaráðs Háskóla Íslands sem fjallar um kvikmyndina The Amazing Truth about Queen Raquela. Þetta er heimildamynd um lady-boy frá Filippseyjum sem á sér draumum sældarlíf í París. Myndin verður síðan sýnd annað kvöld á Háskólatorgikl. 20:00 í sal H-102 og miðar verða seldir eftir málþingið og fyrir sýninguna en miðinn kostar 600 kr. Myndin fer ekki í bíóhús á Íslandi fyrr en á föstudag.



Málþingið um kvikmyndina verður haldið í Hringleikasalnum beint fyrir neðan Háskólatorg,

H-101 miðvikudaginn 8. september kl. 11:40-12:30.




Þessi sitja fyrir svörum og ræða myndina: (Mynd fengin af www.poppolipictures.com)

1. Anna Jonna Ármannsdóttir formaður félagsins Trans Íslands, félags transgender fólks á Íslandi, með BS próf í rafeindaverkfræði frá Álaborgar og starfar nú hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands.



2. Gunnar Theodór Eggertsson stýrir málþinginu en hann lauk BA-prófi frá HÍ í almennri bókmenntafræði með listfræði sem aukagrein og MA-prófi frá Háskólanum í Amsterdam í kvikmyndafræði.



3. Katrín Anna Guðmundsdóttir sem er stundakennari í kynjafræði ásamt þvíað stunda MA-nám í kynjafræði. Hún er meistaranemi í viðskipta- ogmarkaðsfræðum og rekur fyrirtækið Hugsaðu ehf. sem sér um ráðgjöf ognámskeið í jafnréttismálum.



4. Ólafur le Fleur Jóhannesson skapari og leikstjóri myndarinnar ræðir og situr fyrir svörum. Hann hefur unnið við kvikmyndagerð í um 13 ár en eftirmargvísleg verkefni í byrjun ferilsins stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki,Poppola Kvikmyndagerð og hefur síðan leikstýrt fjórum heimildamyndum og tveimur leiknum. Ólafur hlaut Edduverðlaun árið 2004 og 2005 fyrir bestu heimildamynd og hefur unnið til fjölmargra verðlauna á erlendum hátíðinni með myndinni sem allir eru að tala um: The Amazing Truth about QueenRaquela. Síðasta mynd sem kom frá Poppola var Stóra Planið sem fer í sýningar á erlendum kvikmyndahátíðum í vetur.



Hver framsögumanneskja verður með stutt erindi, brot úr heimildamyndinni verður sýnt og stúdentum gefst kostur á að spyrja spurninga eða velta upp hugmyndum og pælingum

Wednesday, April 2, 2008

Auglýsing

Útskriftarnemar í land-og ferðamálafræði báðu mig um að koma þessu skila:



Fimmtudagskvöldið 3. apríl og laugardaginn 5. apríl munu útskriftarnemar íland- og ferðamálafræði halda bingó. Er það gert til fjáröflunarútskriftarferðar til Thailands.



Fullorðinsbingó Fimmtudagskvöld 3. apríl kl. 19:30 í Öskju.

Fullt af flottum vinningum. Sjoppa á staðnum - pizzusala.



Fjölskyldubingó Laugardaginn 5. apríl kl. 14:00 í Öskju.

Fullt af flottum vinningum. Sjoppa á staðnum - kökusala. Verð á bingóspjaldi er 500 kr. Eftir hlé er hvert spjald á 300 kr og tvöspjöld á 500 kr.



Misstu ekki af þessum frábæru viðburðum!



English version. Bingo. Students in geography and tourism will be having a fund raising bingo for their graduation trip to Thailand.



Thursday, april 3. at 19:30 in Askja. Refreshments for sale – pizzas.



And saturday april 5th there will be family bingo at 14:00 in Askja. Refreshments for sale – cakes.

Price: 500 kr for one board. 300 kr for one board and 500 for two afterthe break.



Lots of great prizes and lots of fun.

Thursday, March 13, 2008

Vísindaferð!!

Heil og sæl öll!!!

Það var verið að bjóða okkur í visindaferð til Landsvirkjunar með sagnfræði, ensku og spænsku. Vissulega er þetta með stuttum fyrirvara, því ferðin er á morgunn, en við höfum tvo klukkutíma til að skrá okkur, þannig ef þið viljið mæta eldhress, þá er vísó á morgunn í Landsvirkjun og ég fæ fleiri upplýsingar bráðum, en skráning er í póstfang alb4@hi.is.

Tuesday, March 4, 2008

The Celluloid Closet - Videókvöld


Videókvöld verður næsta mánudag, 10.mars kl. 20.00, staðsetning kemur fram seinna. Þar ætlum við að horfa á myndina The Celluloid Closet.
THE CELLULOID CLOSET is the film version of author Vito Russo's landmark book by the same name. Filmmakers Rob Epstein and Jeffrey Friedman, who have previously won an Academy Award for Common Threads: Stories From The Quilt, bring this book to life. THE CELLULOID CLOSET explodes sexual myths and explores how our attitudes about homosexuality and sex roles have evolved through the century. With clips from over 100 Hollywood movies and interviews with many of the filmmakers and actors who created them (including Tom Hanks, Shirley MacLaine, Susan Sarandon, Whoopi Goldberg, Tony Curtis, and Gore Vidal), THE CELLULOID CLOSET is an epic story -- by turns surprising, hilarious, and disturbing.

Wednesday, February 27, 2008

Staðsetning videókvölds

Sæl öll.



Við ætlum að hittast annað kvöld kl. 20.00 í Árnagarði, í stofu 301.

Vonast til að sjá sem flesta :)

Kv. Bjarney

Tuesday, February 26, 2008

Videókvöld


Heil og sæl öll. Videókvöldið verður á fimmtudaginn kl. 20.00. Það fer eftir fjölda hvar það verður haldið (og hvort það verður haldið) þannig að endilega skrifið nafnið ykkar hér í kommentakerfið (það þarf ekki að hafa google reikning til þess, ég er búin að laga það) og höfum gaman :)


Í Hrein og bein (tekið af síðunni http://simnet.is/nn/hreinogbein.html) birtist kornungt samkynhneigt fólk með andlit og persónuleika og lögð er áhersla á einlægar og persónulegar frásagnir. Hér fléttast saman húmor og alvara og leitast er við að ná fram grundvallarkenndum eða tilfinningum hinnar samkynhneigðu reynslu. (Mynd einnig tekin af http://simnet.is/nn/hreinogbein.html).
Vonast til að sjá, og heyra frá sem flestum :)


Wednesday, February 20, 2008

Videókvöld

Ekki skráðu sig margir á videókvöldið, þannig að mér datt í hug að við myndum reyna að setja það á annan tíma. Hvernig líst ykkur á mánudag?

Kv. Bjarney :)