Ef þið eins og ég tókuð ekki eftir tölvupóst sem okkur barst um frábæra uppákoma í skólanum á morgunn, miðvikudaginn 8.okt, kemur hér aðeins stytt útgáfa af póstinum:

Málþing og forsýning á vegum Stúdentaráðs Háskóla Íslands sem fjallar um kvikmyndina The Amazing Truth about Queen Raquela. Þetta er heimildamynd um lady-boy frá Filippseyjum sem á sér draumum sældarlíf í París. Myndin verður síðan sýnd annað kvöld á Háskólatorgikl. 20:00 í sal H-102 og miðar verða seldir eftir málþingið og fyrir sýninguna en miðinn kostar 600 kr. Myndin fer ekki í bíóhús á Íslandi fyrr en á föstudag.
Málþingið um kvikmyndina verður haldið í Hringleikasalnum beint fyrir neðan Háskólatorg,
H-101 miðvikudaginn 8. september kl. 11:40-12:30.
Þessi sitja fyrir svörum og ræða myndina: (Mynd fengin af www.poppolipictures.com)
1. Anna Jonna Ármannsdóttir formaður félagsins Trans Íslands, félags transgender fólks á Íslandi, með BS próf í rafeindaverkfræði frá Álaborgar og starfar nú hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands.
2. Gunnar Theodór Eggertsson stýrir málþinginu en hann lauk BA-prófi frá HÍ í almennri bókmenntafræði með listfræði sem aukagrein og MA-prófi frá Háskólanum í Amsterdam í kvikmyndafræði.
3. Katrín Anna Guðmundsdóttir sem er stundakennari í kynjafræði ásamt þvíað stunda MA-nám í kynjafræði. Hún er meistaranemi í viðskipta- ogmarkaðsfræðum og rekur fyrirtækið Hugsaðu ehf. sem sér um ráðgjöf ognámskeið í jafnréttismálum.
4. Ólafur le Fleur Jóhannesson skapari og leikstjóri myndarinnar ræðir og situr fyrir svörum. Hann hefur unnið við kvikmyndagerð í um 13 ár en eftirmargvísleg verkefni í byrjun ferilsins stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki,Poppola Kvikmyndagerð og hefur síðan leikstýrt fjórum heimildamyndum og tveimur leiknum. Ólafur hlaut Edduverðlaun árið 2004 og 2005 fyrir bestu heimildamynd og hefur unnið til fjölmargra verðlauna á erlendum hátíðinni með myndinni sem allir eru að tala um: The Amazing Truth about QueenRaquela. Síðasta mynd sem kom frá Poppola var Stóra Planið sem fer í sýningar á erlendum kvikmyndahátíðum í vetur.
Hver framsögumanneskja verður með stutt erindi, brot úr heimildamyndinni verður sýnt og stúdentum gefst kostur á að spyrja spurninga eða velta upp hugmyndum og pælingum

