Sæl öll og velkomin á síðu nemendafélags okkar!
Kynvera er nemendafélag kynjafræðinnar og í stjórn hennar eru:
Bjarney Inga Sigurðardóttir,
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og
Kristín Sævarsdóttir
Tæknilegir örðugleikar enn, ég kemst ekki inná eldri síðu Kynveru, þannig til bráðabirgða notum við þessa síðu.
Á döfinni eru umræðuklúbbur, videókvöld og auðvitað vísindaferðir, sem við látum ykkur öll vita af, allt skýrist betur á næstu dögum, enn erum við í startholunum :) Fylgisti endilega með á síðunni og við verðum duglegar að senda ykkur email um allt sem er að gerast.
Fyrst á dagskrá er videókvöld, þar sem sýnd verður myndin Hrein og bein, þar sem ungt samkynhneigt fólk segir frá lífi síni og viðbrögðum fjölskyldu og vina þegar þau komu úr skápnum.
Sýningin er ætluð á miðvikudaginn kl. 20, annaðhvort heima hjá mér (Bjarneyju Ingu) eða í háskólanum, en ef mæting verður góð, þá býst ég við að tala við einhvern í skólanum til að fá herbergi, þannig endilega látið okkur vita hve margir mæta svo fundarstaður geti verið ákveðinn :).
Vonandi skemmtum við okkur vel saman það sem eftir lifir veturs og gerum hressa hluti :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment